Dásamleg íbúð í Calpe
Þessi íbúð er 59,11 m² að stærð og samanstendur af 2 svefnherbergjum með innbyggðum fataskápum og 2 baðherbergjum. Hún býður upp á opið, bjart og rúmgott skipulag með fullbúnu eldhúsi þar sem boðið er upp á mismunandi hönnunarútfærslur. Að auki fylgir sérmerkt stæði í lokuðum bílakjallara og geymsla.
Sameiginlega svæðið í þessum glæsilega íbúðakjarna býður upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir alla aldurshópa. Þar er m.a. stór og falleg „infinity“ sundlaug, sérstakt barnasvæði með barnalaug og vatnsbrunnum til kælingar á heitum dögum. Einnig er stórt sólasvæði með sólbekkjum til að njóta sólarinnar í ró og næði.
Fyrir börnin er leikvöllur á svæðinu, en auk þess eru ýmis önnur afþreyingartæki og aðstaða í boði, s.s. skrifstofuaðstaða, sælkerahorn, tennisborð, minigolf, líkamsræktarsalur, sauna, tölvuleikja- og bíósalur, poolborð og píluspjald.
Og er einnig hjóla- og rafhlaupahjólageymsla fyrir íbúa.
Calpe er heillandi og ört vaxandi bær, staðsettur í norðurhluta Alicante-héraðs, í göngufæri frá Miðjarðarhafinu og í stuttri akstursfjarlægð frá líflegu strandborginni Benidorm. Þetta fallega þorp, með útsýni yfir hafið, er sannkallaður gimsteinn fyrir þá sem leita að rólegum og öruggum lífsstíl í hlýju og notalegu Miðjarðarhafsloftslagi.